Um safnið
Bókasafn Garðabæjar er öllum opið, bæði börnum og fullorðnum. Þar má finna úrval bóka, tímarita og annarra gagna til fróðleiks og skemmtunar. Hægt er að fá safnefnið lánað heim eða lesa það og skoða á safninu sjálfu. Starfsfólk safnsins er ætíð reiðubúið til að veita aðstoð við bókaval og upplýsingaleit.
Bókasafn Garðabæjar er upplýsinga- og menningarstofnun. Hlutverk þess er meðal annars að veita Garðbæingum, bæði börnum og fullorðnum aðgang að fjölbreyttum bókakosti og rafrænum miðlum til fræðslu og afþreyingar þar á meðal tölvubúnaði og upplýsingum á tölvutæku formi.
Þá er safninu ætlað að efla íslenska tungu, stuðla að símenntun og síðast en ekki síst styðja við atvinnu- og menningarlíf í Garðabæ ásamt því að safna gögnum um sögu Garðabæjar.
Í safninu er lesstofa með sex lesbásum, auk nokkurra lesborða. Lesstofan er opin öllum.
Bæjarbúar eru hvattir til að kynna sér bókasafnið sem er fullt af efni til fróðleiks og skemmtunar.