Útlán
Megnið af safnkosti Bókasafns Garðabæjar er til almennra útlána að undanskildum handbókum og hluta tímarita á lesstofu. Allir íbúar Garðabæjar eiga rétt á þjónustu bókasafnsins gegn framvísun bókasafnsskírteinis sem er útgefið á nafn viðkomandi. Bókasafnsskírteinið gildir í eitt ár í senn frá útgáfudegi þess. Árgjald er 1300 kr.
Börn yngri en 18 ára, ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini endurgjaldslaust.
Börn yngri en 12 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu bókasafnsins. Skírteinishafi (eða ábyrgðarmaður hans) ber ábyrgð á öllum gögnum sem skráð eru á hans nafn.
Bækur, hljóðbækur og tungumálanámskeið eru lánað í 30 daga.
Tímarit, nýjar bækur og tónlistarefni er lánað í 14 daga.
Myndbönd og DVD diskar er lánað í 4 daga.
Hægt er að endurnýja lán ef enginn lánþegi er á biðlista eftir viðkomandi gagni. Þetta er hægt að gera bæði símleiðis í síma 525 8550 eða með tölvupósti: bokasafn@gardabaer.is. Lánþegar geta líka sjálfir framlengt láni á gegnir.is. Greiða þarf sektareyri ef gögnum er ekki skilað á réttum tíma og verði safnefni fyrir tjóni meðan það er í útláni eða glatast ber lánþega að greiða skaðabætur er nema innkaupsverði viðkomandi gagna.