Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Glitrandi litir bræddir á pappír

21.08.2017
Glitrandi litir bræddir á pappírRúna K. Tetzschner, listamaður mánaðarins á Bókasafni Garðabæjar, verður með móttöku og sýnikennslu á bókasafninu miðvikudaginn 23. ágúst kl. 17. Á sýningu Rúnu eru þaraskreytingar á rekavið þar sem er unnið með gjafir hafsins og litlar glitrandi ævintýramyndir. Myndir Rúnu túlka margvíslega umbreytingarorku náttúrunnar og andleg tengsl á mörkum fantasíu sem má kenna við töfraraunsæi. Þær fela einnig í sér jákvæð skilaboð og má nota þær til íhugunar og skapandi ímyndunar. Myndirnar eru unnar með sérstakri blandaðri tækni þar sem duftlitir eru meðal annars bræddir á pappír og mun Rúna við þetta tilefni sýna gestum hvernig hún vinnur.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti og allir eru velkomnir.
Listamaður mánaðarins er samstarfsverkefni Grósku, samtaka myndlistarmanna í Garðabæ, og Bókasafns Garðabæjar.
Rúna er í stjórn Grósku, samtökum myndlistarmanna í Garðabæ og starfar jafnhliða við listir og fræði. Hún á að baki sjö ára nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík en er auk þess með B.A.-próf í íslensku og M.A.-nám í norrænni trú frá Háskóla Íslands.
Rúna hefur sýnt víða hér heima en þó meira erlendis og þá einkum í Danmörku. Hún er auk þess rithöfundur sem hefur sent frá sér ljóðabækur, barnabækur og fræðibækur. Innan fræðageirans hefur Rúna unnið á ýmsum söfnum og var lengst af á Þjóðminjasafni Íslands og Þjóðskjalasafni Íslands. Nú er hún safnvörður í Króki í Garðahverfi í Garðabæ og skrifstofustjóri Sögufélags.
Til baka
English
Hafðu samband