Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bókasafn Garðabæjar tekur þátt í safnanótt 2.2.2018 á milli klukkan 18 og 23

10.01.2018
Bókasafn Garðabæjar tekur þátt í safnanótt 2.2.2018 á milli klukkan 18 og 23

Verið hjartanlega velkomin í Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7 á safnanótt. 

 

Kl. 18:30 Skólakór Sjálandsskóla tekur nokkur lög undir stjórn Ólafs Schrams.
Kl. 19:00-21:00 Unnur María Bergsveinsdóttir sýnir listir með húllahringjum og stýrir svo húllasmiðju. Hlé verður um klukkan 19:45 og upp úr átta verður boðið upp á snúningsdiska. Mæting á Garðatorg 7, allir velkomnir í gleðina á torginu.
Kl. 20:00 Nanna Rögnvaldardóttir matarbloggari og höfundur fjallar um gerð bókanna og matargerð fyrr og nú. Mæting upp á aðra hæð bókasafnsins Garðatorgi 7. Við hvetjum alla að koma og hlusta á Nönnu.
Kl. 21:00 Tónlistarskóli Garðabæjar. Nemendur tónlistarskólans spila fyrir gesti. Hvetjum alla til að koma á hlusta á efnilega krakka og mögulega framtíða stjörnur. Mæting í Heimilishorn bókasafnsins við Garðatorg 7.
Á milli klukkan 20:00 og 22:00 spáir Hrönn Friðriksdóttir í spil fyrir gesti og gangandi. Við hvetjum fólk að kíkja á okkur og panta tíma í afgreiðslu bókasafnsins. Kíkið inn í framtíðina með aðstoð Hrannar.
Á milli klukkan 19:30 og 21:30 munu Karen Ósk og Richard nudda gesti. Endurnærandi og slakandi axlanudd sem mýkir vöðvana og dregur úr spennu. Tímapantanir í afgreiðslu bókasafnsins. Boðið upp á 10 mínútna tíma. Allir velkomnir á Garðatorg 7.
Kl. 21:30 Svavar Knútur tónlistarmaður spilar og syngur fyrir gesti. Allir eru hvattir til að koma og hlusta á þennan frábæra tónlistamann. Mæting á Garðatorg 7 í kaffihúsastemningu. Verið velkomin.
Bókamarkaður verður í gangi með nýjum gömlum bókum. Sjón er söguríkari. Bókagersemar á Garðatorgi 7.

Til baka
English
Hafðu samband