Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anna ljósa kemur í foreldraspjall fimmtudaginn 20.september klukkan 10.

10.09.2018
Anna ljósa kemur í foreldraspjall fimmtudaginn 20.september klukkan 10.Foreldraspjall verður á fimmtudögum kl.10 í bókasafninu Garðatorgi í vetur. Í fyrsta spjalli haustsins kemur Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir og fjallar um bók sína Fyrstu mánuðirnir: ráðin hennar Önnu ljósu, sem er nýkomin út. Í bókinni er að finna ráð frá hinni þaulreyndu Önnu ljósu fyrir nýbakaða foreldra. Bókin er stútfull af gagnlegum upplýsingum um þegar barnið kemur í heiminn, brjóstagjöf, grátur, meltingu, líðan móður, veikindi barna og allt annað sem er mikilvægt að vita um fyrstu mánuðina í lífi barnsins. Anna Eðvaldsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir frá 1994 og aðstoðað þúsundir foreldra í mæðravernd, fæðingum og sængurlegu. Hún býr því yfir mikilli reynslu í heimaþjónustu við foreldra og nýbura. Sylvía Rut Sigfúsdóttir, blaðamaður og móðir, tók saman öll bestu ráð Önnu í eina bók svo að þau gagnist sem flestum. Höfundarnir kynntust þegar Anna var heimaljósmóðir Sylvíu Rutar. Bókin er skreytt með fallegum teikningum Estherar Ragnarsdóttur og Ara Arnaldssonar og aftast er handhægur orðalisti svo að auðvelt er að fletta upp því sem leitað er að hverju sinni. Anna ljósa mun bjóða bókina til sölu á kr.3000. Foreldrar eru velkomnir alla daga í bókasafnið. Við bjóðum foreldra sérstaklega velkomna með börn sín alla fimmtudag klukkan 10. Við bjóðum upp á nokkur erindi yfir veturinn. Næstu viðburðir eru 18.október og 15.nóvember. Dagskrá auglýst síðar.
Til baka
English
Hafðu samband