Sumarlestur opnunarhátíð með Ævari og Ilvu 25. maí
22.05.2019

Skráning í Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar hefst laugardaginn 25.maí kl.11
Sumarlestur er lestrarhvetjandi átak sem stendur yfir í allt sumar til 7.september og hægt er að skrá sig hvenær sem er. Lestrarhestur vikunnar verður dreginn út á föstudögum og í lokin fá allir virkir þátttakendur glaðning.Opnunarhátíð verður þennan dag kl.11 - 15 á Garðatorgi 7.
Ævar Þór Benediktsson les upp úr nýjustu bók sinni kl. 14.
Ilva Krama verður með föndursmiðju, krítar og andlitsmálningu á torginu kl.11 - 14.