Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tæknispjall 18/12 klukkan 17, Garðaprjón klukkan 11

08.12.2019
Tæknispjall 18/12 klukkan 17, Garðaprjón klukkan 11

Tæknispjall  

Fáðu aðstoð með snjalltækið á bókasafninu. Kostar ekkert. Tæknispjall verður einu sinni í mánuði á miðvikudögunum: 23.október, 20.nóvember og 18.desember á milli klukkan 17 og 18. Við höldum því svo áfram eftir jól. Í tæknispjallinu veitir starfsfólk safnsins margvíslega tækniaðstoð fyrir hinn venjulega notanda. Hvernig á að tengjast netinu, finna vefsíður og eyðublöð, nota netið, tölvur, spjaldtölvur og síma. Best er að fólk hafi eigin tölvur eða snjallsíma meðferðis. Starfsmenn safnsins sem verða til aðstoðar vinna við tölvu og kunna ýmislegt en eru ekki lærðir sérfræðingar um tölvu- og tæknimál.

Garðaprjón

Hannyrðaklúbburinn Garðaprjón í bókasafninu Garðatorgi annan hvern miðvikudag kl. 11-12. Bókasafnið er opið fyrir nýrri tímasetningu ef þess er óskað.
Markmiðið er að skapa vettvang fyrir áhugasama að hittast á og bera saman bækur sínar.

Frekari upplýsingar undir viðburðir á Facebook Bókasafns Garðabæjar.

Allir velkomnir.

 

Til baka
English
Hafðu samband