Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Námskeið í skapandi skrifum fyrir fullorðna - skráning í gangi

02.03.2022
Námskeið í skapandi skrifum fyrir fullorðna - skráning í gangi

Námskeið í skapandi skrifum fyrir fullorðna verður í boði á Bókasafni Garðabæjar frá 7.mars til 4. apríl

Leiðbeinandi er rithöfundurinn Sigurlín Bjarney Gísladóttir. Skráning er nauðsynleg á námskeiðið og gjaldið eru 7000 krónur. Kennt verður í fimm skipti, á mánudögum, í einn og hálfan tíma í senn frá klukkan 18 til 19:30.

Sigurlín Bjarney kennir undirstöðuatriðin í skapandi skrifum, gefur heimaverkefni og ábendingar. Fyrir byrjendur jafnt sem reyndari penna. Skapandi skrif eflir sjálfsmyndina og núvitund.

Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið og er þátttökugjaldið 7000 krónur.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á dianajoha@gardabaer.is
Til baka
English
Hafðu samband