Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarnámskeið í hreyfimyndagerð fyrir 9-12 ára

23.05.2022
Sumarnámskeið í hreyfimyndagerð fyrir 9-12 áraNámskeið í hreyfimyndagerð (e. stop motion) fyrir 9 - 12 ára með myndlistarmanninum Ara Yates á Bókasafni Garðabæjar vikuna 13. -16. júní 2022.
Námskeiðið er í fjóra daga og í þrjá tíma í senn frá kl. 10:00 - 13:00.
Námskeiðsgjald eru 15.000 krónur.

Börn eru hvött til að koma með eigin spjaldtölvu eða snjallsíma, en það er ekki nauðsynlegt og hægt að redda þeim sem eiga ekki.
Hreyfimyndagerð eða stop motion er sú tækni til að gera stuttmynd þar sem hlutur er færður til í litlum hreyfingum og teknar af honum myndir. Myndunum er síðan raðað saman þannig að úr verði hreyfimynd.
Hreyfimyndagerð er mjög skemmtileg leið til að segja sögur. Hreyfimyndagerð er gerð með leir-fígúrum og jafnvel með teikningum.

Skráning fer fram hér: https://forms.gle/ufpsoDfUu6kT5msP7
Skráningarfrestur er til 1. júní.
Hægt er að nýta frístundarstyrkinn í námskeiðið.
Athugið. Ekki er unnt að endurgreiða námskeiðsgjöld.

Námskeiðið gæti fallið niður ef ekki næg skráning fæst á það.
( börnin mega koma kl. 09:00 þegar bókasafnið opnar og slappa af með bók þar til námskeið hefst)


_____________________________________
Workshop for kids age 9 - 12 years in stop motion.
The artist and illustrator Ari Yates will teach the technique of Stop motion with clay.
Good if participants can bring their own ipad.
The workshop is four days from 13th - 16th of june from 10:00 am - 13:00 pm.
The cost is 15.000 kr.
Sign up here: https://forms.gle/ufpsoDfUu6kT5msP7
Sign up closes the 1st of june.
Til baka
English
Hafðu samband