Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skráning í Sumarlestur fyrir börn 5-12 ára í fullum gangi

08.06.2022
Skráning í Sumarlestur fyrir börn 5-12 ára í fullum gangi

Börn á grunnskólaaldri og yngri börn sem eru farin að lesa sjálf geta tekið þátt í sumarlestrarátakinu. Hægt er að skrá sig allt sumarið í bókasafninu Garðatorgi 7 og Álftanessafni

Það er leyfilegt er að lesa hvað sem er. Mjög mikilvægt er að lesa í sumarfríi skólanna til að tapa ekki niður lestrargetunni og verða fyrir sumaráhrifum.

Börnin setja sér lestrarmarkmið, skrá lesturinn í lestrardagbókina, fá límmiða fyrir hverja lesna bók og geta fyllt út umsagnarmiða sem þau skila í lukkukassann og úr honum er dreginn lestrarhestur vikunnar, sem fær bók í verðlaun, hvern föstudag kl.12 10.júní - 12.ágúst. Þá föstudaga eru smiðjur fyrir börn kl.10-12. Á lokahátíðinni fá allir virkir þátttakendur glaðning og þrír lestrarhestar verða dregnir út.
Þemað í ár er hafið og geta þátttakendur hengt upp sjávardýr með nafninu sínu á lestraröldurnar hjá bókahvalnum okkar sem tákn fyrir lesnar bækur. Markmiðið er að öldurnar verði sem skrautlegastar og sýni þannig lestrardugnað barnanna. Lesum saman í sumar.
Hafsjór af fróðleik og fjöri!
Á bólakaf í bókaflóð!
Botnlaus fjársjóður!
Til baka
English
Hafðu samband