Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sköpunarskúffan á Garðatorgi

25.10.2022
Sköpunarskúffan á GarðatorgiSköpunarskúffa Bókasafns Garðabæjar, Garðatorgi - 2.hæð
Sköpunarskúffan er "Makerspace" Bókasafns Garðabæjar og er á 2. hæð safnsins á Garðatorgi 7.

Þrívíddarprentari
Hægt er að koma og prófa þrívíddarprentara miðvikudaga og föstudaga milli kl. 14:00 og 18:00 og sérstaklega auglýsta laugardaga.
Komdu og kannaðu möguleika þrívíddarprentunar. Hægt er að skoða ýmsa valkosti á Thingiverse.com.
Nauðsynlegt er að koma með USB lykil með verkefni eða koma og skoða á safninu. Við erum með möppu þar sem hægt er að skoða vinsælustu prentin.
Tímabókun er á bokasafn@gardabaer.is , í síma 5914550 eða í afgreiðslu safnsins.

Athugið að hugmyndin er ekki að taka á móti prentpöntunum í tölvupósti. Við viljum að einstaklingar komi og grúski sjálfir en starfsmenn safnsins eru alltaf tilbúnir að aðstoða og sýna möguleika prentarans.

1 meter af efni er á 50 krónur.

Í bili leyfum við einungis verkefni sem taka að hámarki 5 klst.

Saumavél
Hægt er að koma á bókasafnið og fá að nota saumavélina hvenær sem er á meðan safnið er opið.
Notendur þurfa að koma með eigin tvinna að heiman.

Vínylskeri
Tími og smiðjur í vínylskera munu vera auglýst bráðlega.

Sköpunarskúffan okkar er í stöðugri þróun. Fylgist með.
Til baka
English
Hafðu samband