Óróasmiðja með hönnunarteyminu ÞYKJÓ
23.10.2025 13:48
Ilmandi kanilstangir, hrjúfir könglar, dúnmjúkir ullarhnoðrar og kræklóttar greinar...Við opnum skilningarvitin okkar mjúklega fyrir aðventuna sem er handan við hornið.
Við leggjum áherslu á ilminn sem fylgir jólahátíðinni og förum skapandi höndum um þann náttúrulega efnivið sem við getum fundið í nærumhverfinu á þessum árstíma.
Ó!Rói er skapandi smiðja fyrir börn og fjölskyldur þeirra með hönnunarteyminu ÞYKJÓ.
Við óróagerð æfum við sjálfa jafnvægislistina og lærum hvernig ólíkir hlutir geta myndað eina samhangandi heild.
Smiðjan hentar börnum í fylgd fullorðinna frá 4 ára aldri.
English
Let us make Christmas mobiles together with ÞYKJÓ design team.
For children 4 and up, must be accompanied by an adult.
