Minecraft: Hönnun og landafræði - fullbókað, hægt að setja barnið á biðlista
21.09.2024 11:30
Skema mætir með sína stórskemmtilegu Minecraft smiðju á bókasafnið.Í smiðjunni fá þátttakendur tækifæri til þess að byggja á sérhönnuðum netþjóni Skema sem er nákvæm eftirlíking af Íslandi. Þátttakendur vinna saman í hópum og koma sér saman um byggingu og staðsetningu hennar á Íslandi.
Markmið smiðjunnar eru að þjálfa teymisvinnu, skipulagningu verkefna, sköpunargáfuna og að auka áhuga á landafræði Íslands. Smiðjan hentar fyrir börn á aldrinum 7-10 ára og endilega að muna eftir nestinu.
Fullbókað - hægt er að senda tölvupóst á asbjorgbj@gardabaer.is með upplýsingum um nafn, aldur, netfang og símanúmer og setja barnið á biðlista.