Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vísindakakó fyrir forvitna krakka

19.10.2024 13:00
Vísindakakó fyrir forvitna krakka

Vísindakakó í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi laugardaginn 19.október kl. 13:00

Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.


Veturinn 2024-2025 verður boðið upp á viðburðarröðina "Vísindakakó - Fyrir forvitna krakka". Verkefnið er unnið í samstarfi við bókasöfn á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri og verða alls tíu Vísindakakó haldin á laugardögum í vetur á mismunandi bókasöfnum.

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Gert er ráð fyrir að hver viðburður sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Viðburðarröðin hlaut styrk frá Vísindum of velferð: Styrktarsjóði Sigrúnar og Þorsteins árið 2023 til undirbúnings og framkvæmdar á Vísindakakó en verkefninu stýra Davíð Fjölnir Ármannsson, kynningarstjóri hjá Rannís og Martin Jónas B. Swift, verkefnastjóri STEM greina við Nýmennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands (https://www.visindavaka.is/vidburdir/visindakako/)
Til baka
English
Hafðu samband