Opnunarhátíð sumarlesturs - myndabás og Blaðrarinn
31.05.2025 12:00
Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar hefst með pompi og prakt 31.maí Boðið verður uppá stórskemmtilegan myndabás allan daginn og Blaðrarinn mætir einnig til leiks og býr til blöðrudýr af ýmsum stærðum og gerðum frá kl. 12-14. Bókasafnið er opið frá kl. 11 til kl. 15.
Lestrardagbækur fyrir sumarlesturinn verða afhentar.
Hvað er Sumarlestur?
Sumarlestur er lestrarátak sem hvetur börn til að lesa í sumarfríi skólanna til að tapa ekki niður lestrargetu sinni. Börnin setja sér lestrarmarkmið, skrá lesturinn í lestrardagbókina og fá límmiða fyrir hverja lesna bók. Þau geta síðan fyllt út umsagnarmiða sem þau skila í lukkukassann og úr honum er dreginn lestrarhestur vikunnar hvern fimmtudag kl. 12 frá 12. júní til 14. ágúst, sem fær bók í verðlaun.
Uppskeruhátíðin er svo 23. ágúst þar sem glaðningar, gotterí og allskonar gleði verður við völd. En allir virkir þátttakendur fá glaðning frá bókasafninu.