Fleira nýtt í Bókasafni Garðabæjar
12.11.2016
Einfari eftir Hildi Sif Thorarensen
Það heyrist hvinur og allt verður svart. Ungur Íslendingur finnst látinn í Osló og rannsóknarlögreglukonunni Júlíu gengur illa að finna morðingjann. Þegar höfuðlaust lík í skógarrjóðri bætist við prísar hún sig sæla að hafa geðlækninn Alexander sér...
02.11.2016
Svartalogn eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur
Þorpið virtist friðsælt í vetrarskrúðanum en svo kom úrhellið, skolaði burt hlýrri yfirhöfninni og í ljós kom að það var í raun og veru illa klætt – var kannski í engu innan undir.
Eftir margra mánaða atvinnuleit heldur Flóra vestur á firði til að...
02.11.2016
Drungi eftir Ragnar Jónasson
Haustið 1987 fer ung par í rómantíska ferð í sumarbústað á Vestfjörðum – ferð sem fær óvæntan endi og hefur skelfilegar afleiðingar. Tíu árum síðar ákveður lítill vinahópur að verja helgi í gömlum veiðikofa í Elliðaey, nánast sambandslaus við...
02.11.2016
Petsamo eftir Arnald Indriðason
Í Petsamo, nyrst í Finnlandi, bíður ung kona eftir unnusta sínum. Þau ætla að sigla heim til Íslands með Esjunni, burt frá stríðinu sem er nýkomið til Norðurlanda, en unnustinn kemur ekki.
Vorið 1943 er heimsstyrjöldin í algleymingi og mikið um að...
21.10.2016
Sjöunda barnið eftir Erik Valeur
Besta norræna glæpasagan, Glerlykillinn 2012 Bókmenntaverðlaun Weekendavisen Bókmenntaverðlaun danska ríkisútvarpsins Verðlaun Danske Bank fyrir bestu frumraun höfundar Börnin sjö áttu eitt sameiginlegt: Þau fæddust á fæðingargangi B á Rigshospitalet...
21.10.2016
Ljósin á Dettifossi : örlagasaga eftir Davíð Loga Sigurðsson
Stríðinu var að ljúka. Davíð Gíslason, stýrimaður á Dettifossi beið þess með eftirvæntingu að komast aftur heim til eiginkonu og barna. Þá kom tundurskeytið.
Dettifoss var eitt af síðustu skipunum sem þýskir kafbátar sökktu í síðari...
21.10.2016
Hestvík eftir Gerði Kristnýju
Ísinn í sjoppunni við Valhöll hlaut að bragðast guðdómlega. Þar sem fólki var áður drekkt eins og kettlingum í poka eða það sundurlimað fyrir að stela tvinna var nú boðið upp á pönnukökur með þeyttum rjóma. Síðan var hægt að kasta peningi ofan í gjá...
25.08.2016
Næturgalinn - Höfundur: Kristin Hannah
Líf frönsku systranna Vianne og Isabelle hefur ekki alltaf verið dans á rósum og þegar nasistar hertaka landið fer tilveran á hvolf. Enda þótt ógnin lúri í hverju skúmaskoti láta þær ekki bugast og finna hvor um sig leið til að takast á við napran...
25.08.2016
Vefur Lúsífers - Höfundur Kristina Ohlsson
Örvæntingarfullur maður leitar til lögfræðinganna Martins Benner og Lucyjar Miller í Stokkhólmi. Systir hans er látin, tók eigið líf eftir að hafa játað á sig fimm morð. Í blöðunum var hún kölluð fjöldamorðingi og nú vill bróðirinn að hún fái...
25.08.2016
Hættuspil eftir Viveca Sten
Áhrifamikil spennusaga um brostnar vonir, bældar minningar og dulda skömm. Sjötta bókin Sandham-seríunni um lögfræðinginn Nóru Linde og lögreglumanninn Thomas Amdreasson
09.05.2016
Fæðingarsögur: 50 reynslusögur íslenskra kvenna. Hanna Ólafsdóttir tók saman
Í bókinni Fæðingarsögur má lesa um fæðingarreynslu íslenskra kvenna. Sögurnar eru eins misjafnar og þær eru margar enda eru engar tvær fæðingar eins. En allar eru frásagnirnar einlægar og skrifaðar af konum sem eru tilbúnar að deila sinni persónulegu...
09.05.2016
Aðeins ein nótt eftir Simona Ahrnstedt
Natalía De la Grip er af aðalsætt og þráir að komast í lykilstöðu í fjölskyldufyrirtækinu. David Hammar, sonur verkakonu, stefnir að því að tortíma De la Grip-fjölskyldunni vegna atburða í fortíðinni. Þegar David og Natalia hittast á...
- Fyrri síða
- 1
- ...
- 18
- 19
- 20
- ...
- 29