Leiðarljós:
Bókasafn Garðabæjar hefur það að leiðarljósi að standa jafnfætis bestu almenningsbókasöfnum á landinu hvað varðar safnkost, búnað og þjónustu. Hlutverk:
Bókasafn Garðabæjar er upplýsinga- og menningarstofnun sem starfar í samræmi við gildandi lögum um almenningsbókasöfn. Meginmarkmið:
• Bókasafn Garðabæjar sé aðgengilegt öllum bæjarbúum.• Heimsóknir í bókasafnið séu hluti af daglegu lífi bæjarbúa.
• Heimsóknir í safnið séu hluti af menningaruppeldi barna og unglinga í Garðabæ
• Safnkostur uppfylli óskir og þarfir viðskiptavina.
• Hvetja bæjarbúa til að lesa, ekki síst börn.
• Hafa á að skipa ánægðum og hæfum starfsmönnum sem sinna störfum sínum af fagmennsku og alúð.
• Fjármunum sé vel varið.