Foreldramorgnar á bókasafninu Garðatorgi 7 á fimmtudögum klukkan 10:30 yfir vetrartímann
Viðburðir tengdir því eru auglýstir á Facebook bókasafnsins og í viðburðadagatali á vef safnsins.
Foreldramorgnar eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra.
Hentar þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi.
Markmiðið með foreldramorgni er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra í Garðabæ. Hafa vettvang til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar.
Samvera og inn á milli verður boðið upp á ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barnauppeldi og skynjunarsmiðjur.
Ekki síst er mikið úrval til af bókum um börn og uppeldi.
Foreldrar, verðandi foreldrar, afar, ömmur og börn eru velkomin.
Bókasafnið býður upp á foreldrafræðslu og skynjunarstund einu sinni í mánuði, hina fimmtudagana verður áhersla á bókina, leik og skynjun.