Hvað er Rafbókasafnið?
Markmiðið er að bjóða almenningi upp á ókeypis aðgang að fjölbreyttu úrvali hljóðbóka, rafbóka og tímarita, en Rafbókasafnið er aðgengilegt lánþegum nær allra almenningsbókasafna á Íslandi. Rafbókasafnið er samstarfsverkefni Landskerfis bókasafna og almenningsbókasafna.
Þau sem eiga bókasafnskort í gildi hjá Bókasafni Garðabæjar eða öðrum aðildarsöfnum Rafbókasafnsins, geta fengið bækur og tímarit að láni á Rafbókasafninu. Sjá lista yfir aðildarsöfn hér.
Rafbókasafnið - fá aðgang
Þú þarft gilt bókasafnskort hjá Bókasafni Garðabæjar.
Símar og spjaldtölvur
Einfaldast er að nota Rafbókasafnið í síma eða í spjaldtölvu með Libby appinu. Nálgist appið í App Store eða Google Play.
Strikamerkisnúmerið á bókasafnskortinu og lykilorðið fyrir leitir.is er notað til þess að virkja aðganginn.
Nánari leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Tölvur
Hægt er að hlusta, lesa og skoða úr tölvunni á rafbokasafn.is, en einnig er hægt að setja upp Libby appið á libbyapp.com.
Strikamerkisnúmerið á bókasafnskortinu og lykilorðið fyrir leitir.is er notað til þess að virkja aðganginn.
Ef þú vilt hlaða niður bókum í tölvuna þarf að setja upp Adobe Digital Editions forritið.
Nánari leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Lesbretti
Hægt er að lesa bækur Rafbókasafnsins á flestum lesbrettum, öðrum en Kindle og Storytel.
Til þess að lesa bók frá Rafbókasafninu á lesbretti þarf fyrst að stofna Adobe ID-aðgang og sækja og setja upp Adobe Digital Editions forritið á tölvu. Bókinni er svo hlaðið niður á tölvuna, hún opnuð í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.
Strikamerkisnúmer og lykilorð
Manstu ekki lykilorðið eða viltu búa til lykilorð?
Lykilorðið sem notað er til að skrá sig inn á Rafbókasafnið er það sama og á leitir.is.
Hér býrðu til eða sækir um nýtt lykilorð fyrir leitir.is og Rafbókasafnið. ATH. Auðkenni notenda = kennitala
Leiðbeiningar til að búa til lykilorð https://www.youtube.com/watch?v=y-ExLnq2TX0
Hvernig finn ég strikamerkisnúmerið mitt?
Kortanúmerið er á bókasafnskortinu þínu og byrjar oftast á GE, A, B, IL eða 400.
Ef þú ert með stafrænt bókasafnskort getur þú skoðað kortanúmerið í símanum.
Þú getur einnig fundið það undir Mínar stillingar á leitir.is.
Hvað má hafa bækur lengi í láni?
Lánstími er ýmist 7, 14 eða 21 dagar og gögnin skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum.
Við hvetjum þig til að skila gagninu um leið og þú klárar - svo næsti geti notið. Ef enginn er að bíða eftir bókinni getur þú framlengt lánstímann.
Það eru engar sektir á Rafbókasafninu.
Hvað má hafa margar bækur að láni í einu?
Þú getur haft 21 bók að láni í einu og sett inn 21 frátekt.
Þarf að tengast netinu til að lesa eða hlusta á rafbækur?
Þú getur hlaðið niður bókum og tímaritum í Libby appinu fyrir síma og spjaldtölvur eða Adobe Digital Editions forritinu fyrir tölvur og lesbretti og notið þegar þér hentar.
Nettenging er nauðsynleg til að lesa og hlusta í vafra.
Er hægt að nota Rafbókasafnið án þess að hlaða niður öppum eða forritum?
Hægt er að hlusta og lesa í vafra á tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma og því er ekki nauðsynlegt að hlaða niður neinum öðrum forritum til þess.
Ef þú ert með spurningar eða ábendingar varðandi Rafbókasafnið er hægt að senda póst á bokasafn@gardabaer.is eða leita til starfsfólksins á þínu bókasafni.