Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sköpunarskúffa Bókasafns Garðabæjar, Garðatorgi - 1.hæð

Sköpunarskúffan er "Makerspace" Bókasafns Garðabæjar og er á 1. hæð safnsins á Garðatorgi 7.

Athugið aðrar tímasetningar á sumrin. Vegna frekari upplýsinga, hafa samband á staðnum, með tölvupósti bokasafn@gardabaer.is eða í síma 5914550.

Reglur varðandi sköpunarskúffuna

Aldurstakmark er 15 ára, börn yngri en 15 ára geta notað prentarann/vínylskerann en verða að vera í fylgd með fullorðnum allan tímann.
Nauðsynlegt er að greiða fyrir prentið/vínyl fyrir fram, sjá gjaldskrá.
Þrívíddarprentari: ekki er hægt að setja af stað verk sem klárast ekki fyrir lokun safnsins kl. 19.00. 5 klukkustundir er hámark fyrir hvert verk.
Sköpunarskúffan er opin miðvikudaga og föstudaga frá 14-18 yfir vetrartímann ef að nægt starfsfólk er á staðnum.

Tímabókun er á bokasafn@gardabaer.is , í síma 5914550 eða í afgreiðslu safnsins.

Þrívíddarprentari

Hægt er að koma og prófa þrívíddarprentara miðvikudaga og föstudaga milli kl. 14:00 og 18:00.
Komdu og kannaðu möguleika þrívíddarprentunar. Hægt er að skoða ýmsa valkosti á Thingiverse.com.

Einnig er hugmyndamappa á staðnum og hægt er að koma með hönnun á USB lykli (starfsfólk getur þá metið á staðnum hvort hægt sé að prenta þá hönnun) Nauðsynlegt er að taka tillit til hvaða möguleika prentarinn býður uppá og hversu lengi prentið mun taka. Forritið sem við erum með heitir: Ultimaker cura.
Tímabókun er á bokasafn@gardabaer.is , í síma 5914550 eða í afgreiðslu safnsins.

Athugið að hugmyndin er ekki að taka á móti prentpöntunum í tölvupósti. Við viljum að einstaklingar komi og grúski sjálfir en starfsmenn safnsins eru alltaf tilbúnir að aðstoða og sýna möguleika prentarans.

Í bili leyfum við einungis verkefni sem taka að hámarki 5 klst.
Forrit í tölvu: Ultimaker cura

Vínylskeri/Cricut

Gestir geta komið með eigið efni eða nota efni sem bókasafnið býður upp á gegn gjaldi. Gestir koma alfarið með fatafilmur til að strauja/ þrykkja / setja á fatnað. Við erum eingöngu með fyrir veggi, hurðir, glugga og harðan flöt. Nauðsynlegt er að vera með grunnþekkingu á vínylskera/Cricut til þess að geta nýtt sér tækið. Forrit í tölvu er: Greatcut 4.

Tímabókun er á bokasafn@gardabaer.is, í síma 5914550 eða afgreiðslu safnsins.

Efnisverð, sjá gjaldskrá:

Sköpunarskúffan okkar er í stöðugri þróun. Fylgist með.

 

 
English
Hafðu samband