Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Urriðaholtssafn verður skólabókasafn Urriðaholtsskóla frá og með janúar 2024.

Skólabókasafnið verður aðeins fyrir nemendur skólans en við bjóðum ykkur öll velkomin á Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi 7.

Skólabókasafnið og Bókasafn Garðabæjar mun bjóða upp á fjölskylduviðburði fyrsta laugardag í mánuði kl. 12-14 og þriðja fimmtudag í mánuði kl. 16-18. Fylgist með viðburðum á vefnum og Facebook Bókasafns Garðabæjar.

Samhliða því mun Bókasafn Garðabæjar bjóða upp á pöntunarþjónustu sem afhent verður í Urriðaholtsskóla á þessum viðburðum og skilakassi verður settur upp í skólanum á næstu vikum. Það er hægt að hringja í síma 5914550 eða senda tölvupóst á bokasafn@gardabaer.is og biðja um að fá bók senda á þessum dögum. Hægt er að sjá hvað er til á Bókasafni Garðabæjar á leitir.is . Athugið að til að geta fengið bók að láni þarf að eiga gilt bókasafnsskírteini.

 

English
Hafðu samband