Leshringur hefst 20. september
06.09.2011
Leshringur bókasafnsins hefst 20.september kl. 10:30. Viðfangsefni haustannar er Guðríður Þorbjarnardóttir, ein víðförlasta kona miðalda og kvenskörungur mikill, norræn byggð á Grænlandi og landnámskonan Auður djúpúðga. Lesnar verða bækurnar Eiríks saga rauða, Grænlendinga saga, Veröld víð eftir Jónas Kristjánsson, Vínlandsgátan eftir Pál Bergþórsson, Hrafninn og Auður eftir Vilborgu Davíðsdóttur, Brúðkaupið í Hvalsey eftir Önnu Dóru Antonsdóttur og margvíslegar fræðigreinar. Allir eru velkomnir í leshringinn.