Jólarósir Snuðru og Tuðru í bókasafninu
07.12.2011

Margir lögðu leið sína á Bókasafn Garðabæjar laugardaginn 26.nóvember, en þá sýndi Möguleikhúsið leikritið Jólarósir Snuðru og Tuðru, við mikinn fögnuð hinna ungu áhorfenda.
Leikritið byggir á sögum Iðunnar Steinsdóttur um óþekktarormana Snuðru og Tuðru, en þær bækur njóta mikilla vinsælda meðal barna.
Að
sýningu lokinni bjuggu
margir til skrautleg jólakort
og lituðu fallegar jólamyndir í föndursmiðjunni
í barnadeild safnsins.
Til baka