BÓKABÆIR AUSTANFJALLS OG VÍÐAR
27.08.2014
Í heiminum eru til um þrjátíu bókabæir. Það eru bæir sem hafa sterka tenginu við bókmenntir og sýna þær á marga ólíka vegu. Fyrir utan að státa af fornbókaverslunum og bókakaffi þá eru bækurnar oft notaðar í skúlptúra eða sem byggingarefni í borð og stóla. Bókmenntahátíðir eru oft haldnar í þessum bæjum sem laða þá oft til sín fjölda gesta.Á Íslandi er að finna nokkra bókabæi en Rannveig Anna Jónsdóttir er ein þeirra sem tilheyrir hópi fólks sem stendur á bak við stofnun bókabæja á Árborg, Hveragerði og Selfoss. Megináherslan verður á bækur og bókmenningu á svæðinu.