Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jólaleiksýning, upplestur og söngur í Bókasafni Garðabæjar

08.12.2015
Jólaleiksýning, upplestur og söngur  í Bókasafni Garðabæjar

Mikið fjölmenni var í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi, síðastliðinn laugardag, en þá sýndi Möguleikhúsið hið bráðskemmtilega jólaleikrit Hvar er Stekkjarstaur?  Margir stöldruðu síðan við og skoðuðu nýjar  bækur og tímarit eða föndruðu jólakort og jólapoka, en alla laugardaga fram að jólum er jólaföndur, jólamyndir til að lita, kaffi og piparkökur á borðum í barnadeild. Næsta laugardag 12.desember kl.11:30 mun Ómar R. Valdimarsson lesa upp úr nýrri bók sinni 13 skrýtnir jólasveinar og laugardaginn 19.desember kl.11:30 mun Þóranna Gunný Gunnarsdóttir, sem er útskrifuð af leiklistarbraut FG, lesa jólasögu og syngja og spila nokkur jólalög fyrir börnin. Verið velkomin í notalega fjölskyldustund í bókasafninu.

Til baka
English
Hafðu samband