Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ljósin tendruð á Garðatorgi. Barnajólaleikrit kl. 15:00 3. des. á bókasafninu - Jólin hennar Jóru

25.11.2016
Ljósin tendruð á Garðatorgi. Barnajólaleikrit kl. 15:00 3. des. á bókasafninu - Jólin hennar Jóru

Stoppleikhópurinn flytur barnajólaleikritið Jólin hennar Jóru. Leikritið segir frá Jóru litlu en hún er tröllastelpa sem býr upp í fjöllum. Einn daginn stelur hún jólakíkinum hans Skrepps en hann er einn besti aðstoðarmaður jólasveinanna. Allt er í pati því án kíkisins góða geta þeir ekki vitað hvort börnin séu þæg og góð til að fá í skóinn. Fer Skreppur því af stað til að hafa upp á kíkinum en það verður ekki auðvelt því Jóra er farinn til mannabyggða, að upplifa þessi jól sem allir eru að tala um.

Höfundar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.

Leikstjóri: Sigurþór Albert Heimisson.

Leikarar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.

Leikmynd og búningar: Leikhópurinn.

Gítarleikur: Edwin Kaaber.

Ferðasýning fyrir 1-10 ára.

Sýningartími: 30 mínútur.

Til baka
English
Hafðu samband