Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Áttu Garðbæing sem er fæddur 2015 – komdu í Bókasafn Garðabæjar og þiggðu gjöf fyrir 2ja ára barnið þitt

09.12.2017
Áttu Garðbæing sem er fæddur 2015 – komdu í Bókasafn Garðabæjar og þiggðu gjöf fyrir 2ja ára barnið þitt

Áttu Garðbæing sem er fæddur 2015 – komdu í Bókasafn Garðabæjar og þiggðu gjöf fyrir 2ja ára barnið þitt

Nú fer hver að vera síðastur að ná í bókapokann til okkar fyrir börn fædd 2015, en það er hægt að sækja til áramóta.

Í lestrarstefnu Garðabæjar er lögð áhersla á að upplýsa foreldra og aðra uppalendur um mikilvægi lestrar og vekja athygli á hver þáttur þeirra í lestrariðkun barna er mikilvægur.

Af því tilefni hefur bókasafnið, í samvinnu við skólaskrifstofu Garðabæjar, ákveðið að færa öllum 2ja ára börnum í Garðabæ og Álftanesi sem eru fædd árið 2015 bókapoka að gjöf. Pokinn inniheldur barnabók og upplýsingar um hvernig foreldrar geta stuðlað að betri málskilningi og málþroska barna sinna og undirbúið þau þannig undir lestrarnám.

Við bjóðum foreldrum / forráðamönnum viðkomandi barna, ásamt barni sínu, að koma í Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi 7 eða Álftanessafn við Eyvindarstaðaveg í Álftanesskóla og sækja bókapoka. Hægt er að sækja pokann hvenær sem er á opnunartíma safnanna.
Bókasafnsskírteini eru ókeypis fyrir krakka til 18 ára aldurs.

AFGREIÐSLUTÍMI

Bókasafn Garðabæjar v/Garðatorg 7, 210 Garðabæ:
Virka daga kl. 9-19
Laugardaga frá 1. sept. – 31. maí kl. 11 -15
Fyrsta föstudag í hverjum mánuði kl. 11 -19
Álftanessafn v/Eyvindarstaðaveg Álftanesi:
Opið mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16 -19
miðvikudaga kl. 16 -21
föstudaga kl. 16-18
Sumartími 15. júní til 15. ágúst: mánudaga til fimmtudaga kl. 16-19

Til baka
English
Hafðu samband