Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ritsmiðja 11. til 15. júní fyrir 9-12 ára - skráning hafin og lýkur 6.júní

28.05.2018
Ritsmiðja 11. til 15. júní fyrir 9-12 ára - skráning hafin og lýkur 6.júní

FINNST ÞÉR GAMAN AÐ BÚA TIL SÖGUR?

Skráðu þig í ritsmiðju eigi síðar en 6.júní með Ragnheiði Gestsdóttur á bókasafninu Garðatorgi 7.
Bókasafn Garðabæjar býður ókeypis sumarnámskeið í skapandi skrifum dagana 11. - 15. júní kl. 10-12 fyrir 9-12 ára börn Börnin geta mætt um leið og bókasafnið opnar kl. 9.

Allir eru velkomnir, sama hvar þeir eru staddir í ritfærni. Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur og myndlistarmaður leiðbeinir börnunum við sögugerð og myndskreytingar. Föstudaginn 15. júní er aðstandendum boðið að koma og sjá afrakstur vinnunnar.
Skráning fer fram í síma 525 8550 eða með tölvupósti í bokasafn@gardabaer.is. Við þurfum nafn barnsins, aldur, símanúmer, nafn og netfang forráðamanns.

Til baka
English
Hafðu samband