Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ása Sólveig Finnsdóttir er lestrarhestur vikunnar 30.júní til 6.júlí

06.07.2018
Ása Sólveig Finnsdóttir er lestrarhestur vikunnar 30.júní til 6.júlíÁsa Sólveig Finnsdóttir Thorlacius var dregin út sem Lestrarhestur vikunnar 30.júní – 6.júlí í sumarlestrarátaki Bókasafns Garðabæjar. Hún er 7.ára nemandi í Flataskóla og er mjög dugleg að lesa, næstum búin að fylla út heila lestrardagbók, líkt og 9.ára systir hennar Auður Krista. Umsagnarmiðinn sem Ása Sólveig skilaði í lukkukassann fjallaði um bókina Rut á afmæli. Henni fannst bókin vera skemmtileg og spennandi og teiknaði flotta mynd af persónunum Rut og Dóru á miðann sinn. Systurnar hlakka mikið til að fara í frí seinna í sumar með fjölskyldunni og munu að sjálfssögðu hafa með sér bækur til að lesa á ferðalaginu því þær ætla sko að taka þátt í sumarlestrinum í allt sumar! Ása Sólveig fékk bókina Ísland á HM eftir Gunnar Helgason í verðlaun og óskum við henni innilega til hamingju.
Til baka
English
Hafðu samband