Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Foreldraspjall fimmtudaginn 18.október klukkan 10 - að lesa fyrir börnin

15.10.2018
Foreldraspjall fimmtudaginn 18.október klukkan 10 - að lesa fyrir börnin

Elsa Pálsdóttir sérfærðingur hjá Menntamálastofnun fræðir um mikilvægi þess að lesa fyrir ung börn

í foreldraspjalli í Bókasafni Garðabæjar, fimmtudaginn 18.okt. kl. 10. Foreldraspjallið eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra. Hentar þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi. Markmiðið með foreldraklúbbnum er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra í Garðabæ. Hafa vettvang til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar. Kaffi, te og spjall, inn á milli verður boðið upp á ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barnauppeldi. Ekki síst er mikið úrval til af bókum um börn og uppeldi. Foreldrar, verðandi foreldrar, afar, ömmur og börn eru velkomin.
Til baka
English
Hafðu samband