Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hrekkjavökusmiðja verður að venju í bókasafninu Garðatorgi 7 laugardaginn 27. október á milli kl. 11 og 14

25.10.2018

Í smiðjunni gefst þátttakendum kostur á að skera út grasker og búa til eigin graskerslukt. Það þarf að taka með sér grasker og beittan hníf. Einnig er nauðsynlegt að hafa góða skeið til að skafa innan úr og ílát undir graskersmaukið. Frekari upplýsingar eru á bókasafninu Garðatorgi. Gott að tilkynna þátttöku á netfangið bokasafn@gardabaer.is eða í síma 591 4550 til að tryggja sér pláss. Vonumst til að sjá sem flesta.

Til baka
English
Hafðu samband