Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á eigin skinni með Sölva Tryggvasyni þriðjudaginn 5.feb. kl. 17:30

28.01.2019
Á eigin skinni með Sölva Tryggvasyni þriðjudaginn 5.feb. kl. 17:30

Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður fjallar um betri heilsu og innihaldsríkara líf í erindi sem hann byggir á bók sinni Á eigin skinni

Bókin fjallar um leið Sölva til heilsu á ný, þær fjölbreytilegu tilraunir sem hann gerði á eigin skinni og niðurstöður sem hann komst að. Fyrir áratug hrundi heilsa Sölva Tryggvasonar bæði líkamlega og andlega. Eftir þrautagöngu milli lækna og annarra sérfræðinga, endalausar rannsóknir og lyfjameðferðir án þess að hann fengi bót meina sinna ákvað hann að taka málin í eigin hendur. Síðan hefur Sölvi fetað allar mögulegar slóðir í leit að betri heilsu og auknum lífsgæðum. Á þeirri vegferð hefur hann gert nær endalausar tilraunir á sjálfum sér viðvíkjandi mataræði og hreyfingu, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðslu, öndunaræfingar, tengingu við náttúru og ótal margt annað sem snýr að heilsu. Erindi Sölva er hluti af samstarfssamningi Bókasafn Kópavogs, Bókasafns Garðabæjar og Bókasafns Hafnarfjarðar, og mun erindið einnig fara fram á Bókasafni Hafnarfjarðar mánudaginn 4. febrúar kl. 17 og Bókasafni Kópavogs þriðjudaginn 12. febrúar, kl. 17. Aðgangur á öll þrjú erindi er ókeypis og allir velkomnir.
Til baka
English
Hafðu samband