Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Úr sófanum í útivist með dróna - erindi 21.maí

08.05.2019
Úr sófanum í útivist með dróna - erindi 21.maí

Erindi um dróna með Sigurði Þór Helgasyni þriðjudaginn 21.maí kl. 17:30  

Sigurður Þór Helgason, framkvæmdastjóri, var ekta borgarbarn þangað til að hann kynntist ævintýraheimi drónaflugs og myndatökum en eftir það gjörbreyttist líf hans. Hann hélt sig áður við sína heimahaga en eftir að hann eignaðist dróna þá hefur hann nýtt allan sinn frítíma til að ferðast um landið og taka fallegar landslagsmyndir. Hann bendir einnig á að þetta sé frábær leið til að fá krakka til að njóta útivistar með foreldrum. Hægt er að lesa skemmtilegt viðtal við Sigurð Þór hér https://www.mbl.is/ferdalog/frettir/2019/03/08/dronar_geta_breytt_kyrrsetufolki_i_gongugarpa/

Sigurður Þór verður á Bókasafni Garðabæjar þriðjudaginn 21.maí klukkan 17:30 þar sem hann ræðir dróna, landslag og myndatökur. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur á meðan húsrúm leyfir.

Til baka
English
Hafðu samband