Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bókasafn Garðabæjar auglýsir eftir sérfræðingi

07.10.2019
Bókasafn Garðabæjar auglýsir eftir sérfræðingiBókasafn Garðabæjar auglýsir eftir sérfræðingi
Bókasafn Garðabæjar óskar eftir öflugum og hugmyndaríkum sérfræðingi í 50% starf til eins árs með möguleika á framtíðarstarfi. Staðan er laus frá og með 1.janúar 2020.
Sérfræðingur vinnur í samræmi við samþykktir, markmið, starfsáætlun og starfshætti safnsins. Sérfræðingur er hluti af viðburðateymi og vinnur með og tekur að sér stjórnun og skipulag einstakra viðburða og klúbba ásamt því að sinna almennum afgreiðslustörfum og öðrum verkefnum sem til falla.
Bókasafn Garðabæjar er menningar-, upplýsinga- og þjónustusetur bæjarbúa sem er rekið af Garðabæ samkvæmt lögum um bókasöfn nr. 150/2012. Bókasafn Garðabæjar leggur áherslu á að veita gestum aðgengilega, fjölbreytta og framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni
• Skipulag og aðstoð við viðburði
• Markaðs- og kynningarmál, m.a. textavinna og upplýsingagjöf á vefsíðu safnsins
• Almenn afgreiðslustörf
• Aðstoð við upplýsinga- og heimildaleit
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Góð skipulagshæfni, hugmyndaauðgi, frumkvæði, framtakssemi, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
• Vandvirkni og nákvæmni í vinnubrögðum, geta til að vinna í hópi og miðla þekkingu
• Góð íslensku- og enskukunnátta, hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Víðtæk tölvukunnátta og geta til að tileinka sér nýja tækni
• Færni til að vinna undir álagi og sinna mörgum verkefnum
Umsóknarfrestur er til og með 23.október 2019.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar í síma 591 4550, einnig með því að senda tölvupóst á margretsig@gardabaer.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tilliti til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Til baka
English
Hafðu samband