Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skyndihjálparnámskeið í foreldraspjalli fimmtudaginn 17/10 klukkan 10:30

14.10.2019
Skyndihjálparnámskeið í foreldraspjalli fimmtudaginn 17/10 klukkan 10:30

Skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða krossins fyrir foreldra ungra barna. Foreldrar og börn þeirra, verðandi foreldrar, afar og ömmur og aðrir áhugasamir velkomnir. Heitt á könnunni.

Foreldraspjall á bókasafninu Garðatorgi 7 einu sinni í mánuði á fimmtudögum klukkan 10:30 yfir vetrartímann

Viðburðir tengdir því eru auglýstir á Facebook bókasafnsins. Foreldraspjallið eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra.
Hentar þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi.
Markmiðið með foreldraklúbbnum er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra í Garðabæ. Hafa vettvang til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar.

Það verður boðið upp á ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barnauppeldi.
Ekki síst er mikið úrval til af bókum um börn og uppeldi.
Foreldrar, verðandi foreldrar, afar, ömmur og börn eru velkomin.
Til baka
English
Hafðu samband