Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sigríður G. Jónsdóttir sýnir í Bókasafni Garðabæjar – móttaka listamanns 14.mars á milli kl. 13-15

08.03.2020
Sigríður G. Jónsdóttir sýnir í Bókasafni Garðabæjar – móttaka listamanns 14.mars á milli kl. 13-15

Sigríður G. Jónsdóttir sýnir í Bókasafni Garðabæjar í mars  – móttaka listamanns 14.mars á milli kl. 13-15

Sigríður G. Jónsdóttir er listamaður marsmánaðar á Bókasafni Garðabæjar. Sýningin er tileinkuð áttræðisafmæli Sigríðar og tekur hún á móti gestum laugardaginn 14.mars klukkan 13 til 15. Allir eru hjartanlega velkomnir og verður heitt á könnunni. Listamaður mánaðarins á Garðatorgi er í samstarfi Bókasafns Garðabæjar og Grósku.
Sigríður G. Jónsdóttir er fædd á Ísafirði 29.febrúar 1940 og ólst upp á Akranesi og er nú búsett í Reykjavík. Sigríður starfaði sem sjúkraliði í þrjátíu og fimm ár og hefur stundað nám við Myndlistarskóla Kópavogs auk þess að vera meðlimur hópsins Litagleði sem ýmsir kennarar hafa leiðbeint. Þá sat Sigríður í fyrstu stjórn Félags Frístundamálara, sem nú heitir Litka. Hún er einnig meðlimur myndlistarfélagsins Grósku sem er til húsa á Garðatorgi þar sem Sigríður er með vinnustofu ásamt tveimur vinkonum. Í rúmlega tuttugu ár hefur Sigríður stundað myndlist og haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sigríður málar með vatns-, olíu- og akrýllitum.
Myndlistarsýning Sigríðar mun standa yfir í mars. Verið velkomin á bókasafnið á afgreiðslutíma sem er mánudaga til föstudaga á milli klukkan 9 og 19 og laugardaga á milli klukkan 11 og 15.

Til baka
English
Hafðu samband