Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bókaspjall - höfundakvöld í streymi þriðjudaginn 17.nóvember klukkan 20

16.11.2020
Bókaspjall - höfundakvöld í streymi þriðjudaginn 17.nóvember klukkan 20

Hallgrímur Helgason, Katrín Júlíusdóttir, Gunnar Þór Bjarnason og Vilborg Davíðsdóttir lesa upp úr nýjum bókum - umræðum stýrir Auður Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur 

Bókaspjall 2020 í streymi á Facebook síðu
Fjórir rithöfundar koma í heimsókn; segja frá og lesa upp úr nýjum bókum sínum. Auður Aðalsteinsdóttir stýrir umræðum.

Vilborg Davíðsdóttir kemur með nýja sögulega skáldsögu Undir Yggdrasil.

Hallgrímur Helgason les úr nýrri ljóðabók Við skjótum títuprjónum.

Katrín Júlíusdóttir mætir með sína fyrstu bók, glæpasöguna Sykur.

Gunnar Þór Bjarnason verður með sagnfræðilegt verk sitt Spænska veikin.

Þriðjudaginn 17.nóvember klukkan 20 streymir Bókasafn Garðabæjar bókaspjalli 2020 á Facebook síðu sinni.

Til baka
English
Hafðu samband