Listamaður júnímánaðar er Sigríður G. Jónsdóttir, sjúkraliði og myndlistarmaður
31.05.2021
![Listamaður júnímánaðar er Sigríður G. Jónsdóttir, sjúkraliði og myndlistarmaður Listamaður júnímánaðar er Sigríður G. Jónsdóttir, sjúkraliði og myndlistarmaður](/library/Images/Frettir/2021.júní.listamaður.Sigríður.jpg?proc=ContentImage)
Listamaður júnímánaðar er Sigríður G. Jónsdóttir, sjúkraliði og myndlistarmaður.
Hún nefnir sýninguna Krían og Jökullinn.Sigríður verður með móttöku föstudaginn 4. júní kl. 17 til 19.
Sigríður hefur málað í yfir tuttugu ár eða síðan hún fékk fyrst leiðsögn í myndlist á námskeiði hjá Sveinbirni Þór Einarssyni myndlistarmanni. Hún stundaði nám í Myndlistarskóla Kópavogs og hefur sótt fjölda námskeiða hjá mörgum góðum listamönnum m.a. Pétri Gaut, Tuma Magnússyni og Erlu Sigurðardóttur.
Sigríður er félagsmaður í Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ, og er með vinnustofu á Garðatorgi. Hún er einnig virk í hóp sem kallar sig Litagleði og hefur fengið til sín marga myndlistarmenn til að leiðbeina félagsmönnum.
Sýningin er tíunda einkasýning Sigríðar en hún hefur einnig tekið þátt í 14 samsýningum hér á landi sem erlendis.