Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lesið fyrir hund | Skráning nauðsynleg

06.09.2021
Lesið fyrir hund | Skráning nauðsynleg

Lesið fyrir hund laugardaginn 11.september - skráning nauðsynleg

Í samstarfi við Vigdísi - Félag gæludýra á Íslandi býður Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7, börnum að koma og lesa fyrir sérþjálfaðan hund. Hver lestrarstund er 20 mínútur, barnið þarf að geta lesið sjálft og vera búið að velja lesefni fyrirfram. Hægt er að skrá sig í síma 591 4550 eða með tölvupósti bokasafn@gardabaer.is og þarf að gefa upp nafn og aldur barns og nafn, kennitölu, símanúmer og netfang þess sem mætir með barninu á safnið. Verið velkomin.
Til baka
English
Hafðu samband