Fjölskyldusmiðja í mótunarleir - Álfar og óskasteinar
23.02.2022

Álfar og Óskasteinar - leirlistasmiðja á Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 26. febrúar kl. 13:00 til 14:00.
Björk Viggósdóttir listamaður mun leiðbeina í smiðjunni.Unnin verða leirlistaverk með innblástri frá Álfum og óskasteinum.
Þar sem ímyndunaraflið og sköpunarkrafturinn er í forgrunni.
Við mótum álfa og óskasteina úr leir og þátttakendur taka með sér listaverkin heim eftir smiðjuna.
Smiðjan er ókeypis og opin öllum.
Workshop with clay for kids - Saturday 26th of February at 13:00, free for everyone