Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skrifum bók - teiknum bók l Námskeið

19.07.2022
Skrifum bók - teiknum bók l NámskeiðSumarnámskeið með Bergrúnu Írisi, rithöfundi, fyrir börn á aldrinum 8 - 12 ára.
Námskeiðið er í fjóra daga, 15. - 18. ágúst frá kl. 10:00 - 12:00.
Námskeiðsgjöld eru 7000 krónur.
Bergrún Íris rithöfundur leiðir námskeiðið þar sem krakkar fá að kynnast töfrum skáldskaparlistarinnar í gegnum orð og myndir. Undirstöðuatriðin í sagnabyggingu eru kennd en Bergrún er jafn víg á orðalistina og myndlistina þegar hún semur sögur.
Hvernig byggjum við upp bók? Hvaða áhrif hafa myndlýsingar?

Skráning fer fram hér: https://forms.gle/LVqkynwaZH54CT5S6
Rukkun berst í gegnum heimabanka.
Námskeiðið gæti fallið niður ef ekki næg skráning fæst á það en það yrði með góðum fyrirvara og fyrir rukkun.
Skráningarfrestur til og með 4. ágúst.
(ath. börnin mega koma kl. 09:00 þegar bókasafnið opnar og slappa af með bók þar til námskeið hefst)
Til baka
English
Hafðu samband