Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Uppskeruhátíð sumarlesturs laugardaginn 20.ágúst kl. 12

16.08.2022
Uppskeruhátíð sumarlesturs laugardaginn 20.ágúst kl. 12Uppskeruhátíð sumarlestursátaksins á Bókasafni Garðabæjar verður haldin laugardaginn 20. ágúst kl. 12:00.
Hinn stórskemmtilegi og frábæri Gunnar Helgason, rithöfundur með meiru, mun koma og lesa upp úr bókum sínum og það er aldrei að vita nema hann leyfi okkur að kíkja í nýjasta handrit sitt.
Gunni ætlar líka að aðstoða okkur við að draga út heppna lestrarsæhesta úr lukkukassanum.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Og munið það er enn tími til að taka þátt og skrá lesturinn sinn.
Til baka
English
Hafðu samband