Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Barnamenningarhátíð í Garðabæ - viðburðir á Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 22.apríl

19.04.2023
Barnamenningarhátíð í Garðabæ - viðburðir á Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 22.apríl

Kl. 12-14 Dr. Bæk græjar hjólið

Kl. 13-15 Bókaföndur fyrir alla fjölskylduna

Komið með hjólið á bókasafnið og fáið heilbrigðisvottorð frá hjólalækninum Dr. Bæk sem mætir með tæki og tól og leiðbeinir um helstu vorverk hjólreiðamannsins. Það er pumpað í dekk, smurt, stillingar á stelli og hjálmi skoðaðar og bremsur og gírar stilltir.
Dr. Bæk mætir á torgið fyrir utan Bókasafn Garðabæjar laugardaginn 22. apríl frá kl. 12 - 14.
Frítt fyrir áhugasama.
______________________
Dr. Bike will come in front of the library of Garðabær on saturday 22nd of april from 12 - 14 pm. He can repair and assess your bike for the summer.

 

Komið á bókasafnið og föndrið skemmtilega hluti úr gömlum afskrifuðum bókum kl. 13-15!
Föndursmiðjan er innblásin af sýningunni Músagangur á bókasafninu sem leikskólabörn af Ökrum og Kirkjubóli unnu í samvinnu við Bókasafn Garðabæjar. Sýningin verður opnuð á Barnamenningarhátíð þann 19. apríl og stendur til 19. maí.

___________________

Visit the library and make fun things from old books!
The workshop is inspired by the exhibition Músagangur (e. Mouse Walk) in the library, which preschool children from Ökrum and Kirkjuból created in collaboration with the Garðabær Library. The exhibition will be opened at the Children's Culture Festival on 19th of April and will be until the 19th of May.

Til baka
English
Hafðu samband