Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Leshringir Bókasafns Garðabæjar – Klassíski og Lauflétti

15.09.2023
Leshringir Bókasafns Garðabæjar – Klassíski og Lauflétti

Klassíski leshringurinn hittist annan hvern þriðjudag, kl.10:30 - 12, í lesstofu Bókasafns Garðabæjar, Garðatorgi 7, 26.september - 5.desember

Lauflétti leshringurinn hittist þriðja þriðjudag í mánuði á Garðatorgi 7 klukkan 18. Allir velkomnir.
Þriðjudaginn 19.september ræðum við bókina Smámunir sem þessir.
Árið er 1985 í litlu þorpi á Írlandi. Jólin nálgast og þar með mesti annatími Bills Furlong, kolakaupmanns og fjölskyldu hans. Snemma morguns, þegar Bill er að afhenda kol í klaustrið við bæinn, gerir hann uppgötvun sem neyðir hann til þess að horfast í augu við eigin fortíð og hina flóknu þögn allra í bænum – þar sem lífið stjórnast af kirkjunni.

Smámunir sem þessir eftir Claire Keegan, eina virtustu skáldkonu Íra, er óvenjulega áhrifamikil saga um von, hugrekki og samlíðan sem farið hefur sigurför um heiminn. Sagan var tilnefnd til hinna virtu Booker-verðlauna árið 2022 og hefur hvarvetna uppskorið lof og vinsældir.

Klassíski leshringurinn hittist annan hvern þriðjudag, kl.10:30 - 12, í lesstofu Bókasafns Garðabæjar, Garðatorgi 7, 26.september - 5.desember.
Lesin verða verk tólf íslenskra nútíma karlrithöfunda sem mörg hver fjalla um málefni sem snerta samtímann. Fræðst verður um höfundana og rabbað á léttum nótum um efnið, lífið og tilveruna.
Kaffi í boði.
Nýir meðlimir velkomnir.

Til baka
English
Hafðu samband