Fróðleiksmoli þriðjudagur 26.september klukkan 17.30: Eliza Reid - Sprakkar
17.09.2023
Eliza Reid forsetafrú kemur á mánaðarlegan Fróðleiksmola á Bókasafn Garðabæjar til þess að segja frá bók sinni, Sprakkar. Í bókinni fjallar Eliza Reid um margvísleg mál sem snúa að lífi og störfum kvenna á Íslandi. Hún ræðir við konur á ólíkum sviðum þjóðlífsins. Þær hafa frá mörgu að segja og koma víða við í spjalli um stöðu kynjanna, atvinnulífið, móðurhlutverkið og ótalmargt fleira. Brugðið er upp litríkri mynd af íslensku nútímasamfélagi, kostum þess og göllum, og rýnt í það sem enn er óunnið í jafnréttismálum.Öll velkomin!