Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lauflétti leshringurinn: Vængjalaus eftir Árna Árnason

07.10.2023
Lauflétti leshringurinn: Vængjalaus eftir Árna ÁrnasonLauflétti leshringurinn hittist þriðja þriðjudag í mánuði á Garðatorgi 7 klukkan 18. Allir velkomnir.

Þriðjudaginn 17.október ræðum við bókina Vængjalaus eftir Árna Árnason.

Sumarið er 1996. Baldur er rúmlega tvítugur, Auður ellefu árum eldri. Af tilviljun liggja leiðir þeirra saman norður á Akureyri, einn dag og eina nótt, og fundur þeirra á eftir að hafa mikil áhrif á líf beggja. Tveimur áratugum síðar stendur Baldur á krossgötum og ákveður að leggja upp í ferð á vit óvissunnar og fortíðarinnar en ekki síður til að horfast í augu við sjálfan sig.
Árni Árnason hefur áður skrifað tvær bækur fyrir börn og unglinga en sýnir hér á sér nýja hlið í skemmtilegri og spennandi skáldsögu sem hreyfir við lesandanum en kveikir líka nostalgíu og hugljúfa stemningu.
Til baka
English
Hafðu samband