Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jólaleikrit og sögustund með Yrsu Þöll laugardaginn 16.desember kl. 12

11.12.2023
Jólaleikrit og sögustund með Yrsu Þöll laugardaginn 16.desember kl. 12

Sögustund með Yrsu Þöll Gylfadóttur - Bókin Bekkurinn minn klukkan 12

Yrsa Þöll Gylfadóttir mætir á Bókasafn Garðabæjar Garðatorgi laugardaginn 16.desember klukkan 12 og les upp úr nýrri bók úr bókaflokknum Bekkurinn minn.
Fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestri og þau sem hafa gaman af að hlusta.

 

Jólaleikritið Nátttröllið Yrsa með leikhópnum Óhemjur flutt á Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi laugardaginn 16.desember klukkan 12.30

Nátttröllið Yrsa sér fram á einmanalega jólahátíð þar sem foreldrar hennar og systkini eru öll orðin að steini. Hún tekur á það ráð að fanga lítinn skógarþröst og læsa hann inni í helli sínum svo hún hafi félagsskap yfir jólin. Skógarþrösturinn er á öðru máli og hjálpar henni að sjá hlutina í nýju ljósi. Þetta er hjartnæm saga um einmana tröll sem þarf að læra að setja sig í spor annarra og hver veit, kannski eignast hún vin í leiðinni? Sagan af Yrsu hefur ríkan boðskap sem á sannarlega erindi við börnin okkar. Hún er einlæg, falleg og sorgleg á stundum en húmorinn og sprellið eru aldrei langt undan!
Sýningin er 25 mínútur að lengd og stútfull af söng, leik og dansi fyrir börn 3 til 7 ára.
Leikarar eru: Ellen Margrét Bæhrenz er leikkona og dansari, Helgi Grímur Hermannsson leiklistarkennari.

 

Verið velkomin!

Til baka
English
Hafðu samband