Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þriðjudagar í sumar: þriðjudagsleikar og leshringur

19.06.2024
Þriðjudagar í sumar: þriðjudagsleikar og leshringur

Leshringurinn Lesum saman er ætlaður fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára þar sem þau taka með sér eldri lesfélaga (foreldri, ömmu, afa, frænku, frænda, eldri systkini o.s.frv.). Leshringnum sem verður stýrt af starfsfólki bókasafnsins og hefur þann skemmtilega tilgang að búa til umhverfi þar sem þátttakendur eiga saman gæðastund þar þeir fá aðstoð við að velja sér lesefni og rætt verður saman um bækur á léttum nótum.
Þegar búið er að lesa eina bók saman er hægt að fylla út happamiða sem fer í lukkupott. Dregið verður úr lukkupottinum eftir samveru þann 6. ágúst sem verður vinningurinn svo afhentur á síðustu samverunni þann 13. ágúst.

Leshringurinn verður á hverjum þriðjudegi í sumar frá klukkan 14-15 frá 11. júní til og með 13. ágúst.


----English----
Reading circle for children and adults together. Will be held in Icelandic.

Þriðjudagsleikar: Stuð og stemmning í útileikjum með starfsfólki Bókasafns Garðabæjar á Garðatorgi. Boðið verður upp á tónlist, útikeilu, teygjó, snú snú, krítar og margt annað. Allir krakkar velkomnir. Þriðjudagsleikar verða á hverjum þriðjudegi frá klukkan 13 – 15 frá 11. júní til og með 13. ágúst.


----English----
Tuesdaygames: Outdoor games with the library staff at the square in front of the library at Garðatorg 7. Music, outdoor bowling, jump rope, chalk and much more. All children welcome.
Tuesdaygames will be held every Tuesday from 13-15 from 11. June to 13th of August.

Til baka
English
Hafðu samband