Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Norræni leshringurinn með Jórunni Sigurðardóttur fimmtudaginn 19.september

02.09.2024
Norræni leshringurinn með Jórunni Sigurðardóttur fimmtudaginn 19.septemberBókasafn Garðabæjar stendur fyrir norrænum leshring í samstarfi við Norræna félagið í Garðabæ.
Útvarpskonan Jórunn Sigurðardóttir mun leiða leshringinn og lesnar verða norrænar bókmenntir sem komið hafa út í íslenskri þýðingu.
Leshringurinn verður mánaðarlega frá september til nóvember, þriðja fimmtudag í mánuði kl. 19.
19.september verður fjallað um bækurnar Ítalskir skór eftir sænska rithöfundinn Henning Mankell og hins vegar Ef þú vilt eftir dönsku skáldkonuna Helle Helle.
17.október verður fjallað um bækurnar Sá sem blikkar er hræddur við dauðann eftir Knud Romer og Gáruð vötn eftir Kerstin Ekman.
21.nóvember - dagskrá auglýst síðar
Takmarkað pláss er í boði og því er skráning nauðsynleg.
Til þess að skrá sig í leshringinn og/eða fá frekari upplýsingar má senda tölvupóst á netfangið: asbjorgbj@gardabaer.is
Myndin af Jórunni var tekinn af Jessicu Sturmberg
Til baka
English
Hafðu samband