Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Furðufugl - ÞYKJÓ með fuglagrímusmiðju

21.03.2025
Furðufugl - ÞYKJÓ með fuglagrímusmiðju

Laugardaginn 22.mars klukkan 13-15

Er þetta lóa? Er þetta spói? Er þetta kannski furðufugl?
Í grímusmiðjunni Furðufugl fá börn tækifæri til að skapa sína eigin furðufugla ásamt fjölskyldunni með aðstoð hönnuða ÞYKJÓ.
Smiðjan er ætluð börnum 4 ára og eldri í fylgd fullorðinna. Við hlökkum til að sjá hvaða nýju fuglar ungast út þennan dag!
Nánar um ÞYKJÓ:
ÞYKJÓ er þverfaglegt teymi hönnuða sem vinna fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði upplifunarhönnunar, innsetninga og vöruhönnunar.
Hönnunarstarf þeirra miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í samstarfi við mennta- og menningarstofnanir.
Á meðal nýlegra verkefna er innsetningin Hljóðhimnar í Hörpu, húsgagnalínurnar Kyrrðarrými og Hreiður og þátttökuverkefnið Gullplatan: Sendum tónlist út í geim!
ÞYKJÓ hlaut Hönnunarverðlauna Íslands 2024 fyrir verkefnið Börnin að borðinu. Hópurinn hefur í tvígang hlotið tilnefningu til sömu verðlauna, árin 2021 og 2022 auk tilnefningu til alþjóðlegu YAM verðlaunanna 2023.
English
Bird mask workshop for children led by the ÞYKJÓ design team.
The workshop is designed for children ages 4 and above and they must be accompanied by adults. Let us see what new birds will hatch.

Til baka
English
Hafðu samband